Sól,pálmatré&kókoshnetur
Snilld
Myndir 2008
11.06.2008 00:34:43 / bigga90

Hvað skal gera?

ég er í vanda...

ég ætlaði að vera farin að sofa
en þá kom upp smá vandi og ég get ekki ákveðið mig

valkvíði á hæsta stigi í gangi hér gott fólk

ég þarf ... hjálp


leyfið mér að setja ykkur í spor mín:

þið eruð stödd inni á myspace
inná síðu Coldplay á myspace
þar er hægt að hlusta á öll lögin af viva la vida or death and all his friends

nú er spurningin; hvort áttu að grípa gæsina þegar hún gefst og hlusta á lögin núna eða bíða í viku þar til geisladiskurinn kemur út, kaupa hann og hlusta á lögin í fyrsta sinn í góðum græjum, svo þú nýtur þeirra í botn?
hafið í huga; þið eruð óóóóóóóóótrúlega spennt, þið eruð eins og barn í nammilandi í augnablikinu. Lögin eru fyrir framan nefið á ykkur og þið þurfið aðeins að rétta út hendina til að grípa þau...

...
...
...
...
...
...
...
...

ég þarf hjálp
...
...
...
...
...
...
_Birgitta*englabossi_

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2008 13:27:43 / bigga90

LOKSINS!

loksins
loksins
LOKSINS!!!
finally
finally
FINALLY!!!

fyrir þá sem eru ekki enn búin að átta sig á því yfir hverju ég gleðst svona innilega, þá skal ég deila því með ykkur:

Loks er líf mitt orðið bjart
eftir að hafa verið svo svart
ó kvöl, ó mikla pína
þú, sem ást mig upp til agna
ert horfin á braut.
Langt eftir ævidaga mína
mun fólk enn fagna,
af gleði legst ég nú í laut.

Höfundur: _Birgitta*englabossi_

ójá, skáldlegu hliðarnar koma upp í mér á svona gleðidegi!

vitiðið annars hvað er heitt í dag? vampírur
klárlega
ójá
umhm
totally

[photo]
ójá!! wrarrr!

[photo]
seriously heeeeiiittttt!!

[photo]
ég myndi ekki sparka þessum framúr rúminu mínu


I rest my case

_Birgitta*englabossi_

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2008 18:42:55 / bigga90

Smáralindin hvað?

Já, enn og aftur er ég að brillera í próflestrinum
Ég er í einhverju stuði, bloggaði síðast, hva?? í síðustu prófatíð og nú koma tvö í röð
heavy, heavy
annars vildi ég bara deila þessu hér með ykkur:

Mohammed Bin Rashid Gardens

og segja; smáralindin hvað?


örugglega gífurlega gaman að búa í dubai í framtíðinni, sérstaklega ef glugginn á svefnherbergi manns myndi vera akkurat í þessari sjónlínu. Hláturinn lengir lífið, right?

_Birgitta*englabossi_

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 18:32:37 / bigga90

Bú!

Sökk?

held það

Þar sem það er nú stærðfræði próf á morgun og svona, þá ákvað ég að skella hér inn nokkrum skemmtilegum stærðfræðilegum vangaveltum, sem sýna hversu gífurlega "dugleg" ég hef verið í dag...

frá nafla og upp að haus er ég tæplega 10cm minni en mamma, þrátt fyrir að vera 7cm stærri en hún í raun :o

ef mamma væri hlutfallslega vaxin eins og ég, þá ætti hún í raun að vera 193cm á hæð
ef ég væri hlutfallslega vaxin eins og mamma, þá ætti ég í raun að vera 143cm á hæð

ekki slæmt ha?
ég væri þá undir dvergsmörkum


góð stærðfræðileg pæling hér í gangi

_Birgitta*englabossi_

p.s. ég hata próf

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 15:53:18 / maría?

ítalar?




hahahaha vá. ég sit hérna í hláturskasti og veit ekki alveg hvað ég á að gera.
ég var að fá bréf frá Ítalíu. það er frá manni sem kallar sig Franco Lucani. ég vil taka það fram að ég hef aldrei átt í bréfskriftum við einhvern, hvað þá ítala með þessu nafni.

hér er bréfið;

Dearest María,
Happy 2008 / How are you?
It's been a long time since I wrote you... Have you maybe decided to cut me off? =( You know, I would like to be always your friend from Italy =)
What's new in your life?
I'm fine, my life is OK, I'm a great student from FLORENCE University. After, I would like to study to apply international carreer (Embassy) or become lawyer, or journalist.
I really would love to hear from you again María, and if possible to receive your photos! I can send you mine too, of course.
Here it's spring already! I love sea, sun and beach life so much!
Write me soon!

Your always,
Franco


Franco Lucani
Via F.LLi Rosselli 30
Castiglion F.No 30
52043
ITALY

mob #347/9017206


hahahahahahahahah.

vá mér finnst þetta svo fyndið. samt skil ég ekki alveg hvernig hann og afhverju hann fann heimilisfangið mitt, en ójæja.

ég vona að ég þurfi ekki að taka það fram að ég ætla ekki að svara þessu bréfi. hahaahha.


annars erekkert að fréttasko. bara gaman gamanagaafkadslfkja. ókei? ræt. töff.

hilsen,
maría




» 103 hafa sagt sína skoðun

11.02.2008 19:25:47 / bigga90

weeee!! whoopdeedoo!! ;D

Shuffle-aðu lögunum í tölvunni þinni og sjáðu hvað kemur út. 

Okey, ég var ekki alveg viss hvernig ég ætti að gera þetta, svo fyrst gerði ég þannig að ég fór í shuffle og skrifaði bara niður við spurningarnar hvaða lög komu nákvæmlega í röðinni sem þau komu, en svo gerði ég þannig að ég shufflaði eftir hvert lag, þannig að það kom alltaf nýr listi, en einungis lagið sem kom fyrst skipti einhverju máli (og já, mér leiðist ef einhver fattaði það ekki) 

þetta lag lýsir persónuleika þínum ;
74'-75' / The Connels
You're all I have / Snow Patrol

þetta lag lýsir útliti þínu ;
High / James Blunt
Hver á að ráða? / Land og Synir 

þetta lag lýsir hvernig þú verður eftir 10 ár ;
Low / Coldplay
Place for my Head / Linkin park 

þetta lag lýsir hvað vinum þínum finnst um þig ;
Dazed and Confused / Led Zeppelin
The way you look tonight / Micheal Buble 

þetta lag lýsir hvað foreldrum þínum finnst um þig ;
Sway / Micheal Buble
Amsterdam / Coldplay 

þetta lag lýsir hvað þér finnst um vini þína ;
Undiscovered / James Morrison
Devil's Dance / Metallica 

Þetta lag lýsir hvað þér finnst um þann sem þú ert hrifinn af ;
Out of my mind / James Blunt
Invincible / Muse 

þetta lag lýsir því hvað þeim sem þú ert hrifin af finnst um þig ;
Colourblind / Counting Crows
Master of Puppets / Metallica 

þetta lag lýsir tilfinningunni sem þú finnur fyrir þegar þú sérð þann sem þú hatar mest;
You Could Be Happy / Snow Patrol
Cold Water / Damien Rice 

þetta lag lýsir mottóinu þínu ;
Lonelily / Damien Rice
Some trust / The Fray 

þetta lag lýsir skapinu sem þú ert í ;
Cheers Darlin' / Damien Rice
Wherever I may roam / Metallica 

þetta lag lýsir fyrsta skiptinu þínu ;
Clocks / Coldplay
Superman / Five for fighting 

þetta lag lýsir persónunni sem þú ert hrifinn af ;
Points of Authority / Linkin Park
Nothing else matters / Metallica 

þetta lag lýsir því hvað fólki finnst um þig þegar það sér þig fyrst ;
Bleeding me / Metallica
High / James Blunt 

þetta lag lýsir framtíðinni þinni ;
One / Metallica
For once in my life / Micheal Buble 

Þetta lag lýsir starfinu sem þú munt vinna við ;
Women like a man / Damien Rice
So long Jimmy / James Blunt 

Okey, váá, er það bara ég sem lendi í þessu þegar ég fer í shuffle? Alltaf nokkrir flytjendur sem eru hrikalega áberandi, og hreinlega ofsækja mig! Almáttugur!! ég tók eftir þessu í sumar þegar ég var að vinna, en hugsaði svo með mér: neiiiii ég er að ímynda mér þetta!! En núna hef ég þetta hér, svart á hvítu!! BLACK ON WHITE! Þetta fer ekki á milli mála!!! Ætli þetta sé eitthvað svona the secret dæmi sem veldur þessu?? :O
save me, o mighty secret!
SMIGHT ME, O MIGHTY SMIGHTER!
úfff nú er ég orðin smá svona skrýtin, or as my friend Sonny would say: I am a tad coocoo!! 

p.s. hallgerður langbrók er svöl

p.s.2. afsakið að þetta blogg sé ekki álíka djúpt og flest önnur blogg, or as my friend Johnny English would say : forgive how "undeep" this blog is! 

_Birgitta*englabossi_  

OVER AND OUT!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 15:11:06 / bigga90

Íslenskt reggí.

Já eins og fyrirsögnin á þessu bloggi gefur til kynna er ég að hlusta á tónlist sem ætti að tilheyra...íslenskri reggí tónlistarstefnu?
Hummm... er virkilega til íslenskt reggí? Staðan er þannig að ég hef nú aldrei verið mikil reggí manneskja, viðurkenni þó að hafa hlustað á Don't worry, be happy þó nokkrum sinnum, en getað hlustað á heilan geisladisk með reggí? Nei...úff nei... Þó veit ég ekki til þess að mér hafi nokkurn tímann verið boðið uppá það, held bara að ósjálfrátt hafi ég haft fordóma útí reggí vegna þess að það er eitthvað svo fjarrænt og ókunnt mér.

"mörgum á ég greiða að gjalda, það er gömul saga og ný"

Svo tilkynnir einhver mér (þessi einhver er ef til vill bróðir minn) á einni af ófáu ferðum mínum milli Akureyrar og Reykjavíkur fyrir nokkrum árum síðan, að komin sé fram alíslensk reggíhljómsveit. Svei mér þá ef ég þurfti ekki að kyngja smá ælu sem kom upp í kok. Hvumsa leit ég á þessa manneskju sem virtist mér sem ókunn á þeirra stundu og hélt að nú hlyti hún að vera að "púlla Houdini" á mig. Ó hve rangt ég hafði fyrir mér, því á næstu stundu skellti aðilinn geisladisk með umtalaðri hljómsveit í geislaspilarann... Ég held að þetta hafi verið í eina skiptið á ævi minni sem ég bölvaði þeim sem fann upp geislaspilarann. Fýld á svip og með ógeð í hjarta sat ég í það sem virtist heil eilífð á meðan diskurinn spilaði öll lög sín sem hljómuðu eins og einhver væri að spila með krít á krítartöflu í mínum eyrum.
Einhvern veginn virðist ég svo hafa útilokað þessa minningu og falið hana í dýpstu skotum heilahvelis míns.

"guð einn veit hvert leið mín liggur, lífið svo flókið er"

Nokkrum árum síðar, nánar tiltekið núna um jólin fékk ég svo geisladisk með umræddri hljómsveit gefins. Með hryllingi horfði ég á plötuna og velti fyrir mér hvað ég ætti nú til bragðs að taka. Ég ákvað að þar sem ég væri nú nokkrum árum eldri og eflaust þroskaðri, skyldi ég gefa tónlistinni smá séns. Ég settist niður með opnum huga og spilaði í gegnum geisladiskinn. Og aftur. Og aftur. Og oft eftir þetta. Og nú er þetta mest spilaði geisladiskurinn á heimili mínu.

"dyrnar opnar draumahöllin. og dregur mig þar inn"

Í gær var dagurinn fyrir reikningshluta stærðfræðiprófsins. Var ekki nóg að ég hafði eytt helginni í að leggja á minnið nokkrar blaðsíður af sönnunum? Nei...nú átti ég bara að kunna að reikna alla stærðfræðibókinn eins og hún leggur sig aftur á bak og áfram. Ég get ekki alveg útskýrt hvað gerðist svo, en áður en ég vissi af mótmælti heilinn minn allmerkilega og eitthvað klikkaði uppi. Ég var búin á því. Alveg búin. Gömul kona í ungum líkama. Mér leið eins og ég væri búin að hlaupa 10 maraþon hlaup án þess að hvíla mig á milli. Ég gat ekki meira. Ég stóð sjálfa mig að því að liggja á gólfinu í herberginu mínu og stara...stara...

"eitt lítið knús, elsku mamma, áður en ég fer"

Dís skynseminnar, sem líktist móður minn óhugnalega mikið, hvíslaði að mér að ég ætti bara að hætta að læra, ég gæti augljóslega ekki meira. Ég kinkaði kolli og ákvað að skella mér í sturtu, hressa mig við. Geisladiskurinn góði fylgdi með, og svei mér ef ég var bara ekki orðin eins og ný manneskja eftir á með aðstoð heitrar gufu og indælis tónlistar. Inn í herbergi lá mín leið og geisladiskurinn fylgdi enn með. Í stað þess að liggja á herbergisgólfinu í þetta sinn, stóð ég sjálfa mig að því að dansa hálfnakin í góðu stuði við ánægjulegu sveiflur tónlistarinnar.
 

"oft ég er í hjarta hryggur, en ég harka samt af mér"


Í morgun settist ég svo fyrir utan prófstofuna, lét tónhlöðuna mína í eyrun og hlustaði enn og aftur á umræddan geisladisk. Þarna sat ég, engu nær í stærðfræði en ánægð og afslöppuð sál. Er hægt að biðja um meira?

 

"ég þakkir sendi, sendi öllum, þetta er kveðjan mín"

 

_Birgitta*englabossi_
 

viðurkennir ástæðulausa fordóma gegn reggí og þakkar Hjálmum fyrir að hafa bjargað sér af barmi geðbilunar.

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.01.2008 12:36:15 / bigga90

Nýtt ár!

Happy New Year!

Já, ég ætla að fá að eiga þann heiður að eiga fyrsta bloggið á nýju ári! :D Nú er árið 2008 gengið í garð (eflaust margir sem verða nú hvumsa og segja við sjálfa sig: Ha? er komið nýtt ár? er það ástæðan fyrir sprengingunum í fyrradag? ó, oops, ég sem hélt að þetta væri árás úr geimnum...)

Áramót eru skemmtilegur tími, nýtt ár þýðir ný tækifæri og nýtt upphaf í hugum flestra. En er þetta samt ekki einhvers konar sjálfsblekking að við getum bara byrjað að nýju bara af því að það kemur nýr dagur? (svartsýnir munu eflaust vera sammála mér). En kannski er þetta bara alveg nýtt upphaf, ég meina einhvers staðar þarf endurfæðing að eiga sér stað, right? (bjartsýnir jánka eflaust þessu)

já, svona reyni ég að höfða til allra í bloggum mínum, no one gets left out. Þetta lærði ég í skóla mannlegra samskipta! Dæmi:

- Stærðfræði er ÆÐI! (nördar hylla mig)

- Ooh, stærðfræði er afkomandi satans, ætti að kallast Damien ekki stærðfræði (tossar setja mig á háan stall og tilbiðja mig sem hinn eina sanna leiðtoga)

- Stærðfræði er...stærðfræði. (afgangurinn lítur á mig sem merkilegasta heimspeking sem uppi hefur verið;)

 

Þetta er ástæðan fyrir því að ég mun stjórna heiminum dag einn, skiljið þið lömbin mín góð?

 

_Birgitta*englabossi_


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.10.2007 21:02:14 / bigga90

Tribute

Þetta er besta blogg í heimi - tribute.

Ha? Já, tribute thank you very nice. Fyrir þá sem ekki vita hvað ég meina, ég finn til með ykkur.

Annars er lítið að segja, ég vaknaði í morgun og leit út um gluggann. Hvað haldið þið? Villi spæta sat og horfði á mig. Augun starandi. Ég fann hrollinn hríslast niður mænuna. Hvers vegna horfðu þessu augu á mig svona ásækjandi? Í skyndi dró ég fyrir gluggann, ég varð að sleppa undan augnaráðinu. Það var þá sem hláturinn heyrðist, þessi hlátur sem lætur mér líða eins og ég sé á 200 km hraða í rússíbana eilífðarinnar. Ég lagðist í fósturstellingu og beið þess að augnablikið liði hjá. Loksins, eftir það sem virtist heilt árhundrað, dó hláturinn út og ég gat andað á ný. Hreint súrefni ofan í lungun, hreinn koltvísýringur út.

Næsta hugsun mín: Sturta. Örmagna skreiddist ég inn á bað, afklæddist og staðsetti mig undir heitum vatnsflaumnum. Ég reyndi að ná skipulagi á óreiðunni sem hugsanir mínar mynduðu. Hvers vegna var Villi spæta snúinn aftur? Ég var viss um að hann væri horfinn úr lífi mínu fyrir fulllt og allt. Hugsanir mínar hvörfluðu aftur til dagsins örlagaríka, dagsins sem er valdur þess að ég sæki tíma hjá geðlækni í hverri viku. Ef Villi hefði strax hætt að flögra um á eftir mér, ef hann hefði tekið því eins og hver annar fugl að mér líkaði ekki hlátur hans, þá hefði þetta aldrei gerst. Ég hefði aldrei tekið upp gamla, yfirgefna stígvélið og kastað því í áttina til hans, hefði hann bara...hætt. Nú er það of seint og Villi er snúinn aftur.

Ég stíg út úr sturtunni, hægri fótur fyrst og vinstri fylgir. Þurrka mér með handklæðinu og dæsi. Hver er þessi draugur sem starir á móti úr speglinum? Ég þekki hann ekki.

Ég veit að fyrir utan situr Villi og bíður mín. Ætli þetta séu ekki bara örlög mín, óumflýjanleg eins og allt annað í þessu lífi?

 

 

 

_Birgitta*englabossi_

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 09:26:02 / bigga90

á lífi?

bíddu wow hvað er í gangi?

er ég á lífi?

jáhh..ég býst við því!!

já kæru aðdáendur, útlitið var svart um tíma en ég er kominn aftur ástarhnoðrar!
en hví yfirgaf ég ykkur á þennan hátt?? jahh við skulum bara segja að það eru ýmsar ástæður...fyrst og fremst kasta ég sökinni á nokkuð sem heitir sterar!! já STERAR!  svona er þetta, blóðflögur verða óeðlilegar, læknum líst ekkert á blikuna, þeir stinga mann eins og svín og greina mann svo með eitthvað að nafni lupus og skella manni svo á 33 daga sterakúr frá helvíti!

dagurinn í dag er dagur númer 27 og vika er eftir!
samkvæmt mínum útreikinugum hef ég innbyrt 321 steratöflu á þessu 26 dögum...geri aðrir betur? nein I don't think so!!
en örvæntið eigi elskurnar mínar, í dag er góður dagur, skammturinn minnkaður  svo ég tek bara fjórar töflur á dag og ég er farin að sjá í gegnum móðuna miklu! :D og ég er öll að koma til!

birgitta possibly eftir sterakúrinn sinnn?? haaaa??

 

jáhh...gæti þetta mögulega verið ég núna? litist ykkur ekki vel á það? úje! ;D

 

en þá snýst staðreyndin að lupus.
eflaust spyrja margir sig? "lupus?? hvað er nú það?" lupus, a.k.a. rauðir úlfar (á ekkert skylt með rauða hunda) er sjálfsónæmissjúkdómur sem veldur því að ég get allt í einu breyst í úlf ef ég fæ ekki vilja mínum framgengt! svo ef ég segi mig langar í ís, þá ráðlegg ég ykkurað drullast til að gefa mér ís, ellegar gætuð þið lent í slæmum málum.

en seriously, þetta er svona svalasti sjálfónæmissjúkdómurinn af þeim öllum, hann hermir eftir geggt mörgum en einkennin eru ekki varanleg svo þetta er svona dáldið bland í poka! og svo er bara svalt fólk með þetta! dæmi:

jáhh, þetta er mercedes sem lenti í 2 sæti í 2 seríu í america's next top model! ha? sjáið hvað hún er cool?? jebbs svona cool er fólk með lupus

jáhhh!!! SVONA  cool er ég! :D

en anyway, fullt af norðmönnum af heimilinu! jáhh, norðmenn eru skemmtileg fyrirbæri, sérstaklega þegar þau eru liggur við öll yfir 190 cm á hæð, talandi um dvergafíling sko! anyways, ætla að fara að gera eitthvað af viti þessa tvo tíma áður en ég mæti til vinnu!! later dudes! ;D

 

_Birgitta*englabossi_


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 19:19:16 / bigga90

frábærtsexyhotkynsvall?

ég hef einungis eitt að segja...

 

 

Hver er best?

 

nokkuð viss um að það sé ég.

_Birgitta*englabossi_
-keepin' it cool

 

Picture61.jpg

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.05.2007 20:29:49 / bigga90

gleðitímar

stærðfræði?
hvað er nú það?

Wikipedia segir okkur eftirfarandi: Stærðfræði er vísindagrein sem beitir ströngum, rökfræðilegum aðferðum til að fást við tölur, rúm, ferla, varpanir, mengi, mynstur, breytingar o.þ.h. Einnig segja sumir að stærðfræði sé eitthvað sem ég ætla nú alls ekki að blogga um, en með þessum hætti fékk ég allt leiðinlega fólkið sem ekki þekkir mig og minn skrýtna hug til þess að fussa og sveia yfir stærðfræðibloggi og einfaldlega hætta að lesa. Nú eru þetta bara þú og ég lesandi góði, saman á flugi í hugarheimi Birgittu a.k.a Bördshjíí. Finnur þú ekki alveg fyrir návist minni?, hrollurinn sem læðist niður bakið á þér er ekki ímyndun ein, þetta er andi minn sem svífur yfir þér...finnuru?

Anywho, þá gældi þetta blíðlyndisveður við okkur í dag, þetta var svona dagur þar sem fólk rífur upp sumarfötin, stuutt pils fara á stjá og hlýrabolir sem fela ekkert verða sýnilegir á götum bæjarins. Margir fara eflaust til sálfræðings eða eru lagðir inná geðdeild eftir að hafa séð eitthvað ófrýnilegt, lítil pils og litlir bolir sem sýna allt sem konur hafa að fela. Niðurstöður rannsókna sýna að hlutfallslega er flest fólk lagt inn á geðdeild í júní, júlí og ágústmánuði.

Ofnæmi er "skemmtilegt" fyrirbæri, því miður er ég ein af þessum fríkum sem þjást af ofnæmi, sem er sérstaklega skemmtilegt eftir svona dag, þar sem við María eyddum miklum hluta dagsins Liggjandi í grasi...og ég er með grasofnæmi...jeeee... Einnig er ég með ofnæmi fyrir; eplum, perum, plómum, kirsuberjum, gulrótum, ferskjum, hundum, köttum og einhverju fleira? 

Áhugavert málefni. En því spyr ég þig lesandi góður, ert þú haldin ofnæmi? Ef svo er hvers konar ofnæmi hrjáir þig þá?

Þetta er vísindaleg spurning og ég sækist eftir svörum. Kannski ég geti nýtt mér svör ykkar í leit minni að lækningu gegn ofnæmi. Hjálpið mér því í ferðalagi mínu að því að gera merkastu vísindauppgötvun 21. aldarinnar.

5917ce97.jpg

(birgitta illa haldin í einu af sínum ofnæmisköstum)

 

Ég vil fá að vekja athygli á þeirri staðreynd að ég er orðing "artí". María skal meira að segja sanna það með myndum sem hún á í tölvunni sem ÉG tók. það er bara eitt orð: ARTÍ.
Já lesandi góður. Hef ákveðið að leggja listabrautina fyrir mig, brátt mun ég chilla heima, með smá Bach í græjunum, málandi nútímalegt málverk í anda Picasso, te í könnunni, skipuleggjandi fluttning til Parísar þar sem ég mun stunda ljósmyndun af hinum margvíslegu andlitum Parísar, svo sem Audrey Tatou og Tom Hanks.

Ja...þetta var áhugavert blogg, því svona í lokin ætla ég að benda á það að þeir sem héldu út lesturinn í þessu bloggi eru geðveikt merkilegir og þekkja mig best allra þar sem þeir augljóslega vissu að þetta var allt nokkurs konar test. Þó vil ég endilega fá svar við ofnæmisspurningu :D

IMG_6860.JPG

Birgitta "rockstar" kveður. Over and out.

_Birgitta*englabossi_

 

 

 

 

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 11:00:26 / bigga90

AFMÆLI!!!!!!

Birgitta:

Í dag á besta manneskja í heimi afmæli!!!!! :D:D:D:D:D vívívívíví!!

María elskan mín er orðin 17 ára!! I'M SO HAPPY!! :D

hún á afmæli í  dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún besta vinkona mín í heiminum
hún á afmæli í dag!! :D :D :D

ELSKA ÞIG LITLA RÚSÍNAN MÍN!! ALWAYYYYYYYS!!!!!!! :D ;****


Sæta ástin mín ;** fallegasta auga ever! ;)  


GAMAN GAMAN!! En nú að öðrum málum!! eruði tilbúin í eitthvað svaka mega geðveikt úber flott og sexy??? (einungis ætlað þeim sem hafa náð 17 ára aldri, aðrir...lítið undan)...

...

...

...

...

...

...

...

...

....

....

....

....

...

...

jájá...þetta er gífurlega sexy og fundið á flickr...
nú skil ég afhverju maría er alltaf inná þessari síðu.

Ef þið viljið skoða frekari myndir af þessum gífurlega kynþokkafulla manni farið þá inná:
http://www.flickr.com/photos/hbobbster/ 

 

sæl að sinni!! og enn og aftur, til hamingju elskan! ;**

_Birgitta*englabossi_

 

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 22:58:27 / bigga90

góða kvöldið

Góða kvöldið góðir hálsar!!

I'm baaaaccckkk!! or something...

já hvað haldiði? ég ákvað að skella einu smá bloggi hér inná mína undurfögru síðu :) hvað er annars í fréttum af mér? ja, ég átti afmæli í fyrradag svo nú er ég fullorðin og eyði dögum mínum á kaffihúsum, drekkandi kaffi og lesandi moggann... og þessi síða er orðin stranglega bönnuð innan 17 ára, múhahahahahahahahahahaha!!!!

SÍMANUM MÍNUM VAR STOLIÐ UM DAGINN OMGLOLOMGLOL!!!!!! :O:O:O:O:O:O:O

já ég er í asnalegu stuði, I know... að horfa á HOUSE!! hummmm ætli ég sé hrjáð af einhvers konar athyglisbrest?? bara þúst lalalallalala þarna er dúfa og æxlið var góðkynja eftir að setan var sett niður!! hihi

huummmm it just hit me að ég hef ekkert bloggað að ráði frá því að ég kom frá kanarí!!! mjög gaman þar!! en omg ég er EKKERT á leiðinni til útlanda á næstunni!!! ég er FÖST á Íslandi!!!! FÖST I SAY FÖÖÖÖÖSSSSTTTTUDAGUR á morgun!! hlakka til! :)

THE ALL SEEING EYE

 

the all seeing eye

I SEE EVERYTHING!!!!!!

 

góða nótt elskurnar mínar...farin að sofa!! :) over and out!

_Birgitta*englabossi_


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 20:40:21 / bigga90

blogg!

blogg blogg blogg!!

bloggblogg blogg blogg bloggbloggblogg. Bloggbloggblogg bloggg!!!

Bloggaaaaaaahhhhhhhhhhhhh

Blogggið blogg blogg blogga blogga blogg bloggblogg bloggari!

Blogggggggggggaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhhh...!!!

Blogg bloggsins:

bloggblogg blogg

bloggið blogg

bloggar blogga bloggblogg

bloggið blogg bloggblogg

-------

bloggblogg blogga blogg

BLOGGGGGGGGAAAAHHHHHH!!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 54278
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1328 dögum
Birgitta yfirgefur landið og maríuna sína